Grafarvogspakkið
Bloggsíður
12.10.2007 21:39:41 / grafarvogur81

Noregsbúarnir okkar

Hæ allir Vildi bara láta alla vita að Hanna Steinunn og Eyjó byrja brátt að blogga;) Slóðin er www.noregur.bloggar.is Bið að heilsa í bili:) Kv. Arna Rut

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 22:26:08 / grafarvogur81

Adios

Hæ allir...

 mig langaði bara að kasta smá kveðju á ykkur sem kíkið hérna inn reglulega...

 ég verð því miður að sjá prinsinn þinn seinna Hinni því í fyrramálið (þriðjudagsmorgun) mun ég feta í fótspor sirrýjar, bigga, magneyar, evu óskar og fleiri aðila sem búið hafa á erlendri grundu og held á vit ævintýranna með honum Eyjólfi !!  Áfangastaðurinn er Noregur (með viðkomu í Færeyjum hehe)

 sjáumst um jólin kæru vinir nær sem fjær og njótið líðandi stundar

Mínar bestu kveðjur til ykkar allra

Hanna Steinunn


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 16:31:37 / grafarvogur81

Önnur hlaupahetja

Já það má með sanni segja að Danni hafi fengið sinn skerf af hygli kvenþjóðarinnar í Rvk maraþoni Glitnis en svo fannst þessi mynd af Bigga sem sýnir ekki minni tilburði.

 http://hlaup.is/myndir/RM2007/RM2007_10km_30-35min/target46.html

 Fréttir:Hrafnkell er orðinn pabbi, til hamingju með nýja prinsinn  -   Hanna Steinunn að flytja út til Noregs, - stelpurnar ætla svo að reyna að nýta sér gjafabréf strákanna og kíkja í Kokkteila á SALT áður Valli hættir þar. Svo er allt í gúdí hjá Hinnz og Prinz (enn ekki komið nafn) og Brynjan komin í nýja íbúð og loks þegar eitt er hætt á bleyju þá er önnur vertíð að byrja fljótlega. Heitasta parið er svo auðvitað á allra vörum ****** og ***** en Séð og Heyrt gæti haft forsíðuna tilbúna á næstunni ;)

 En meira varð það ekki í bili, endilega kommentið ef það eru fleiri fréttir af fólki!!


» 10 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 00:21:49 / grafarvogur81

Nýr strákur í vinahópinn!!!

Langur tími enginn sjór....

Sælt veri fólkið, vona að þið tapið ykkur ekki þó ég vaði yfir ykkur á skítugum skónum og hendi inn einni færslu.

Litli kúturinn heimtaði að ég léti ykkur vita af heimasíðunni sinni, www.litlaljon.barnaland.is Það þarf víst aðgangsorð á síðuna, getið sent póst á vefstjóran eða sent mér emil, sms, hringt eða beðið eftir að hópurinn kemur aftur saman í bústaðarferð.

Annars er allt gott að frétta af okkur frá Austurbrún, lilli er sprækur sem lækur og er búinn að vera mjög vær og góður (eins og pabbi sinn):D.

En þangað til næst, hafið það gott.

 Kveðja,
Hinni


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 20:34:15 / grafarvogur81

Þar sem það er þriðjudagur


Ljóskan hringir í kærastan og segir: "Viltu vera svo vænn að koma hjálpa mér að pússla rosalega erfitt pússluspil, ég veit ekki alveg hvernig ég á að byrja ?"

Kærastinn spyr : Af hverju á myndin að vera?
Ljóskan: Miðað við myndina utan á kassanum þá á þetta að vera hani.

Kærastinn ákveður að fara að hjálpa henni með pússlið.

Þegar hann kemur hleypir hún honum inn og leiðir hann að borðinu þar sem hún hefur dreift úr öllum bitunum í pússlinu.

Hann skoðar bitana í smástund, lítur á kassann, snýr sér þá að henni og segir : "Í fyrsta lagi, alveg sama hvað við gerum, eigum við ekki eftir að geta sett bitana þannig saman að þeir muni á nokkurn hátt líkjast hana."

Hann tekur í hönd hennar og segir: "Í öðru lagi, vertu róleg, fáum okkur góðan tebolla og svo skulum við..." segir hann andvarpandi....... ..setja allt kornflexið í kassann aftur."

 

Kveðja

Hanna Steinunn

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 22:31:12 / grafarvogur81

Einn góður,

 

Fékk þennan sendan og fannst hann sniðugur, kv. Hanna Steinunn 

 

Eins og venjulega fór Eddi snemma í háttinn, kyssti konuna góða nótt og steinsofnaði. Seinna um nóttina vaknar hann og sér gamlan mann inn í svefnherberginu, klæddan í hvítan kufl.

"Hvað í andskotanum ertu að gera í svefnherberginu mínu ?"

segir Eddi reiður.

"Þetta er ekki svefnherbergið þitt," segir maðurinn, "þú ert kominn til himna og ég er Lykla-Pétur."

"HVAÐ? Ertu að segja að ég sé dauður ? Ég vil ekki deyja... ég er allt of ungur og á eftir að gera svo margt," segir Eddi.

"Ef ég er dauður þá vil ég að þú sendir mig til baka á stundinni!"

"Það er nú ekki svo einfalt," Svarar Pétur. Þú getur aðeins snúið tilbaka sem hestur eða hæna. Eða haldið áfram að vera dauður auðvitað.

Eddi hugsaði þetta í nokkrar mínútur og komst að því að það er örugglega ekkert auðvelt líf að vera hestur, úti að hlaupa allan daginn með einhvern á bakinu, svo af tvennu illu þá væri líklegra betra að snúa aftur sem hæna. Það væri ábyggilega letilíf.

"Ég vil snúa aftur sem hæna..." samstundis var Eddi kominn í hænsnakofa með fallegar fjaðrir og allar græjur. En almáttugur hvað honum var illt í afturendanum. Það var eins og hann væri að springa!

Þá kemur haninn....

"Hæ þú hlýtur að vera ný hérna. Hvernig hefurðu það?

"Allt í lagi býst ég við" svarar Eddi en mér finnst eins og rassinn á mér sé að springa!

"Þú ert bara að fara að verpa. Hefurðu aldrei verpt áður?

Nei hvernig geri ég það?

"Gaggaðu tvisvar og þrýstu svo af öllu afli" Svarar haninn.

Og Eddi gaggar tvisvar og rembist svo eins og hann eigi lífið að leysa.

Skömmu síðar liggur hans fyrsta egg á gólfinu.

"Vá segir Eddi þetta er meiriháttar svo gaggar hann aftur tvisvar og byrjaði að rembast og eitt egg í viðbót liggur á gólfinu.

Þegar hann gaggar í þriðja sinn heyrir hann konuna sína öskra: "Vaknaðu Eddi, í öllum bænum. Þú ert búin að skíta út um allt rúm" !!!!!

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 12:34:52 / grafarvogur81

Utanlandsferð sumar 2008 :O)

Hæ hæ

Ég var að ræða það við Stellu og Danna um helgina hvað það væri gaman að fara saman eitthvað út hópurinn8) Ég var að koma með hugmynd um að það væri t.d gaman að fara út í viku til sólarlanda næsta ár.  Þá gætum við jafnvel byrjað að safna hver fyrir sig strax þannig að við eigum fyrir ferðinni þegar þar að kemur:D 

Hvernig líst ykkur á þetta?  Hverjir væru til í að skella sér með?  Auðvitað er hægt að gera þetta hvernig sem er, þeir sem eru komnir með börn gætu jafnvel tekið þau með að skroppið með í stuttan tíma.

Endilega kommentið á það hvort að ykkur fynnist spennandi að gera eitthvað svona og hvort það sé líklegt að þið komið með eða ekki :) Það er orðið svo stutt nefnilega í sumarið 2008!!!

 Kveðja,

Svanhildur :haha:


» 11 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 22:13:50 / grafarvogur81

Hellu

Hæ allir...

Nú styttist í glitnismaraþonið.. hverjir ætla að taka þátt??

Ég verð því miður að segja að ég og stella komumst ekki næsta mánudag í skokk/göngu.. ef það er einhver annar sem hefur áhuga endilega látið danna vita þar sem hann er þriðji aðilinn sem mætir alltaf !!

Hvað er annars að frétta af ykkur? 

Ég er hætt að vinna fram að Noregsför sem verður 10 október... jamm engin vinna (uuu held ég) fram að því.. bara leita að íbúð og vinnu í noregi :D

 Komið nú með eitthvað slúður !! 

Kveðja

Hanna Steinunn


» 18 hafa sagt sína skoðun

03.08.2007 18:15:05 / grafarvogur81

Verslunarmannhelgi

Nú er verslunarmannahelgin að ganga í garð og því ekki seinna vænna en að spyrja

 

Hvað ætlið þið að gera???  Ég ætla að djamma svo þið getið verið í bandi ef þið hafið áhuga á slíku hehe

 

later

Hanna Steinunn


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 22:37:23 / grafarvogur81

Skemmtihlaup/ganga

 

Hæ nú boða ég í göngu/hlaup á morgun klukkan 18:40... Laugardalurinn..

kveðja

Hanna Steinunn


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 17:09:17 / grafarvogur81

Skemmtihlaup/ganga

Hvað segiði um að hittast í laugardalnum á mánudaginn næsta? Þeir sem vilja labba eða skokka í rigningunni geta hist 18:30 fyrir utan laugina en þeir sem nenna því ekki geta komið í sund um 19:30. Það er nú í lagi að vinahópurinn hittist öðruvísi en í partýi með áfengi um hönd. Hvað segiði um þetta?

Kveðja, maðurinn sem meikar ekki áfengi 


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.07.2007 22:00:34 / grafarvogur81

Skemmtihlaup/ganga

Eftir svo vel heppnaða bústaðasukkferð er þá ekki málið að gera e-ð aðeins heilsusamlegra? Hvernig lýst ykkur á að hópurinn hittist fyrir utan laugardalslaugina á morgun mánudaginn 23 og  skokki eða gangi eftir hvað hverjum langar. Svo eftir göngutúrinn getum við skellt okkur í sund. Hvernig hentar að hittast kl. 18:30? Leiðsögumaður göngunnar verður enginn annar en Hinrik Arnarsson, en hann hefur verið búsettur í laugardalnum í langan tíma. Vona að sem flestir mæti og muna eftir sundfötum.

Kveðja þunnimaðurinn

p.s. Sæll er þunnur maður því hann var fullur kvöldinu áður!!! 


» 11 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 14:35:11 / grafarvogur81

Hæ allir

Nú styttist í útilegu sem var fyrirhuguð helgin 20-22 júlí :D

Hvernig er staðan hjá öllum... Þeir sem ætla sér að koma.. eruð þið til í að skrá ykkur svo við getum fundið út hvar við ætlum að vera (hvort við förum í tjald og eltum veðrið eða hvort við förum í bústað)...

Endilega látið heyra í ykkur sem fyrst svo við getum farið að skipuleggja þetta :D

Kveðja

Hanna Steinunn


» 37 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 17:45:38 / grafarvogur81

Hallo fra kroatiu

Hae... sit her a netkaffi i kroatiu og vard ad sjalfsogdu hugsad til ykkar allra

 

Svanhildur vard 26 sidastlidinn fostudag svo eg vildi henda inn afmaeliskvedju her

Til lukku Svanhildur

 

Bestu kvedjur ur kroatiusolinni

Hanna Steinunn


» 9 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 09:15:29 / grafarvogur81

Hádegismatur á mánudag ??

 

Ég var að spá hvort það væri hægt að hóa liðið saman í hádegisverð á t.d. vegamótum næstkomandi mánudag???  Hinni, Sirrý, Hrafnhildur og ég vorum búin að tala um að skipuleggja útilegu í sumar og það þarf að finna dag- og staðsetningu :)  Hver vill koma með, borða góðan mat saman og skipuleggja útilegu??'

 Bestu kveðjur,

Hanna Steinunn


» 23 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill